Viltu halda í mig
Inn í nóttina
Þar sem ég faldi mig
Því ég óttast það
Að ég festist
Að ég festist
Ég næ dýpri anda á haustin, því eðlið mitt er kalt
Ef ég held ekki í hausinn mun hann detta alveg af
Utan við mig? já, ég er bara þannig drengur
Pínulítið skemmdur, eða furðulega tengdur
Annars er góður, bara pínulítið meir
Flakka milli karaktera, Emmsjé eða Gauti Þeyr
Spila þúsund manna gigg og fer svo síðan heim og
Sit svo í myrkrinu og upplifi ekki neitt
En svo man ég hver ég er, þegar ég vakna með þér
Og það rifjast upp á sekúndu hvar hamingjan mín er
Vissi ekki hvort ég væri týndur eða fundinn
Því ég datt í tómarúmið þegar kletturinn minn hrundi
Ég næ dýpri anda á haustin, því eðlið mitt er kalt
Þarf að halda í þetta, því að lausnin mín er þar
Ég á það til að loka og frysta tilfinningarnar
En þegar þú ert nálægt mér þá bráðnar þetta allt
Viltu halda í mig
Inn í nóttina
Þar sem ég faldi mig
Því ég óttast það
Að ég festist
Að ég festist
Ég næ dýpri anda á haustin, því eðlið mitt er kalt
Næ ekki að fylla lungun alveg, samt er ekkert að
Beina brautin skökk, ég man ekki hvar ég beygði
Við erum öll með ör og við munum öll fá fleiri
Mínútur að dögum og dagar verða að vikum
Ef þú opnar ekki augun muntu aldrei skynja myrkur
Ég sendi ást á alla leikmennina sem við misstum
Reyndu að harka áfram svo að skuggar verði að birtu
En ég er alveg góður bara pínulítið meir
Bara glaður að ég vaknaði áður en það var of seint
Þakka fyrir góðar stundir, já ég þakka þeim
En ég alveg búinn og mig langar bara heim
Ég næ dýpri anda á haustin, því eðlið mitt er kalt
Held í þennan andardrátt, því að lausnin mín er þar
Á það til að loka og frysta tilfinningarnar
En þegar þú ert nálægt mér þá bráðnar þetta allt
Viltu halda í mig
Inn í nóttina
Þar sem ég faldi mig
Því ég óttast það
Að ég festist
Að ég festist