Elige una pista para reproducir
Um svala nátt draumar svíkja mig
Og í svipan burtu fljúga
Og til baka aldrei snúa
Ég treyst'á fátt en ég trú'á þig
Því mun tíminn aðeins svara
Hvort allt verður betra þá
Því mun tíminn aðeins svara
Ef segir hann nokkuð frá, ah ah ah, ah ah
Sem hafið kalt er mitt hugarþel
Þar ég hendi því sem hendir
Og á botninum það lendir
Ég reyni allt ef af ráði tel
Því mun tíminn aðeins svara
Hvort allt verður betra þá
Því mun tíminn aðeins svara
Ef segir hann nokkuð frá, ah ah ah, ah ah
Ég nem ekki staðar hér
Það sorglega er
Að allt sem að kemur það fer
Ójá, ó
Ég renni brá yfir röðulgrund
Morgunroðinn lyftir anda
Lýsir leiðina úr vanda
Ef götu þá mun ég gang'um stund
Því mun tíminn aðeins svara
Hvort allt verður betra þá
Nýir dagar kom'og fara
En segja þeir nokkuð frá?
Því mun tíminn aðeins svara
Nema líði hann hljóðlaust hjá, ahh, ójá