Elige una pista para reproducir
Of langt síðan síðast!
Þetta þarf að laga
- Æj sá þetta núna
Fæ ég eftir fjóra daga.
Margt í gangi
Skólinn má ekki bíða
ég væri til í eitthvað...
En bara aðeins síðar.
En hvað með núna?
Er minna að gera?
-æj, er svo þreyttur,
Svoldið mikið um að vera
æj, verð bara heima (mhm)
æj, kominn í taxa (aha)
Heyrumst kannski seinna (einmitt)
Vil ekki taka hinti, þar er ég treg.
Þyki samt annars klár og skemmtileg.
En er í alvöru svona erfitt að svara?
Ef þú vilt ekki neitt
segðu það bara.
Blessuð hvernig ertu?
Voða sæt með hárið stutt
Hvernig er Köben?
Sérðu eftir því að hafa flutt?
-Hæ gaman að heyra,
Sé ekki eftir því!
Flyt samt heim þegar
Sumarið er fyrir bí
Nú er ég heima ef þú myndir kannski vilja kíkja í kaffi?
- Það hljómar vel
en núna er ég í koffínstraffi.
En að kíkja í bjór þá? (edrú)
En að kíkja í sund þá? (slappur)
En að leyfa sér vatnsglas? (haha)
Ég ætla ekk'í Frúna í Hamborg við þig,
Já eða nei – viltu hitta mig?
En er í alvöru svona erfitt að svara?
Ef þú vilt ekki neitt
segðu það bara.
Hey takk fyrir síðast!
Gleymdi ég kannski armbandi?
Er leið að sækja það?
Ég er stundum akandi
Hæhæ aftur,
Sástu þetta armband?