Ég skal koma með og fylgja þér til endaloka veraldar
En þar skilja okkar leiðir því ég hef ekkert að gera þar
Þegar þú grætur glitra augun þín eins og demantar
Í helvíti er kalt, en ég hef kosið mér að vera þar
Tíminn er dýrmætur ég reyni að tefja allt
Með því að deyfa mig í félagsskap meðala
Kórónan hún er þung en þarf samt að bera hana
Hún er úr þyrnitré, út af syndum feðranna
Í misgóðu ástandi, í misgóðum félagsskap
Ég geri hvað sem er fyrir þig
Nema taka mig í gegn
Ég skal koma með og fylgja þér til endaloka veraldar
En þar verðum við að stoppa því ég elska að fokkin vera þar
Þegar þú grést í fyrsta skipti fann ég mér félaga
Sem var til í þetta líf, nema allt sem var gerast þar
Hundurinn býr í mér en hver á að venja hann
Vil engin leiðindi en get verið hefnigjarn
Vil ekki ljúga neitt, oft erfitt að segja satt
Geng fjöll og firnindi í leit minni að sannleika
Í misgóðu ástandi í misgóðum félagsskap
Ég geri hvað sem er fyrir þig
Nema taka mig í gegn
Ég er búinn að vera á flugi í hundrað ár
Hélstu að ég myndi lenda í kvöld?
Ég er búinn að vera á flugi í hundrað ár
Hélstu að ég myndi lenda í kvöld?
Ég geri hvað sem er fyrir þig
Nema taka mig í gegn