Оберіть трек для відтворення

Sofðu, unga ástin mín
– úti regnið grætur
Mamma geymir gullin þín
Gamla leggi og völuskrín
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur
Það er margt sem myrkrið veit
– minn er hugur þungur
Oft ég svarta sandinn leit
Svíða grænan engireit
Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur
Sofðu lengi, sofðu rótt
Seint mun bezt að vakna
Mæðan kenna mun þér fljótt
Meðan hallar degi skjótt
Að mennirnir elska, missa, gráta og sakna