Оберіть трек для відтворення
Heyr þú oss himnum á
Hýr vor faðir, börn þín smá
Lukku oss þar til ljá
Líf eilíft þér erfum hjá
Og að þér aldrei flæmumst frá
Þitt ríki þróist hér
það þín stjórn og kristni er
Svo að menn sem flestir
Safnist, Guð, til handa þér
Fegin yfir því fögnum vér
Síst skarta sönglist má
Sé þar ekki elskan hjá
Syngjum því þýtt lof þá
Þér, Guð drottinn, himnum á
Maður rétt kristinn mun þess gá
En þegar aumir vér
öndumst burt úr heimi hér
Oss tak þá, Guð, að þér
í þá dýrð, sem aldrei þver
Amen, Amen, það eflaust sker